|

ferðaþjónustan landmannahelli
Friðsæll
áningastaður í "Friðlandi
að fjallabaki" til lengri eða skemmri dvalar.
Hentar sérlega vel fyrir fjölskyldur, starfsmannahópa
og reyndar hvern sem vill njóta kyrrðar og dulúðar
fjallanna. Margt athyglisverðra staða er í
nágrenninu, t.d. Hekla, Valagjá, Landmannalaugar
og Íshellar í Reykjadölum svo eitthvað
sé nefnt.
Landmannahellir er í alfaraleið þeirra sem
fara ríðandi um hálendið, enda góð
aðstaða þar fyrir hesta og ferðafólk.
Fyrir hrossin eru þrjú stór gerði, 40
hesta hús og hey.
Svefnpokagisting er í átta húsum fyrir samtals 92 gesti í
einbreiðum og tvíbreiðum kojum. Húsin eru upphituð, með rennandi
vatni, eldunaraðstöðu og wc.
Einnig er við
Landmannahelli svæði fyrir tjöld, fellihýsi
og húsbíla, smáhýsi með hreinlætisaðstöðu,
útigrill og veiðileyfasala.
Ferðaþjónustan er opin frá miðjum
júní fram í september.
Sumar:
Sumarpantanir og fyrirspurnir í síma 893-8407 eða
info@landmannahellir.is
Vetur:
Hægt er að panta skálagistingu yfir vetrarmánuðina í
Hlíð og Höfða.
Vetrarpantanir og fyrirspurnir í síma 868-5577 eða
astefans@simnet.is
|